Öðruvísi borð sem allir geta gert
11.4.2013 | 16:08
Blóð svita og tár kostaði það að gera þessi borð. Í steikjandi hita hér á Akureyri þegar ég skar mig á bitlausri sög og fékk flísar. Tók það hálft sumarið í framkvæmdum meðfram vinnu og öðru. Fékk ég hugmyndina hjá vinafólki okkar Hjartakóngsins að þessum borðum

Eru þetta í heildina 7 bretti. 3 í stofuborðinu og 4 í sjónvarpsborðinu. Fékk ég brettin í sveitinni hjá Hjartakóngsins bedsteforældre sem hlógu og heldu að ég væri orðin eitthvað skrítin, að ætla að gera borð úr þessu "rusli".
Því miður eru ekki til neinar myndir af framkvæmdunum. Kannski sem betur fer, því þá myndu allir sjá hvað ég gerði lóðina fallega doppótta. Ég sagaði eins og helminginn af brettunum á breiddina sem fóru í stofuborðið, pússaði og málaði. Fór svo í Byko og keypti dekk og skrúfur til að geta varnað því að borðið myndi fara í sundur. Ég ákvað að setja dekk undir þar sem uppstöfluð bretti eru ótrúlega þung en eru þá 2 dekk með bremsum og 2 án. Fór ég svo í Íspan og bað þá um að skera fyrir mig gler sem ég gæti haft ofan á borðinu og var það minsta málið. 8mm rúðugler var það heillin.

Við framkvæmdirnar á sjónvarpsborðið var mikið pælt og fékk tommustokkurinn að finna fyrir því. Afhverju? Jú, pláss þarf að vera fyrir öll apparötin sem fylgja sjónvarpinu. Sagaði ég á lengdina tvær spítur burt, pússaði, málaði, skrúfaði saman og skellti dekkjunum undir. Ekkert gler á því borði þar sem ég hef ekki talið þess þurfa.
Þessi borð eru öðruvísi, gefa stofunni nýtt heildar útlit og bíður upp á tækifæri á skemmtilegum samræðum.
Athugasemdir
Hvoru tveggja falleg og athyglisverð smíð. Líta alveg ljómandi út.
En ég verð að benda þér á að þú hefur sett hjól undir borðin, en ekki dekk.
En gullfalleg eru þau.
G. Tómas Gunnarsson, 11.4.2013 kl. 16:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.