Gleðilegt glimmer sumar!
26.4.2013 | 15:22
Ég get ekki beðið eftir að þessi vorpróf verði búin. Í ár eru þau sem betur fer einungis þrjú, fantastiskt! En það sem meira er þá er próflokadjammið korteri eftir seinasta próf og ég get ekki beðið.
Eins og sannri prinsessu og fátækum námsmanni sæmir, þá hef ég verið að leita leiða til að endurnýta gömlu skóna mína.

Eftir langa leit á internetinu af góðum hugmyndum. Ákvað ég að glimmera gömlu druslurnar upp! En aldrei fannst glimmerið sem lét hárin á höfðinu rísa, hjartað stöðvast og allt verða hljótt.
Þar til ég gekk inn í Föndru hér á Akureyri sem er staðsett í Sunnuhlíð. Þar sá ég uppáhalds litinn minn í glimmeri, hver getur staðist það? Enginn!
Ég sem sagt skellt Modge Podge, sem ég keypti einnig í Föndru, á hælinn. Hellti svo alltof miklu glimmeri yfir og glimmeraði stofuna í leiðinni. Hjartakóngnum til mikillar gleði, eða þannig. Þjappaði glimmerinu ofan í límið í von um að það myndi haldast og leyfði því svo að þorna í friði.
Þegar allt var orðið þokkalega þurrt, ákvað ég að hrista skóna vel til að athuga hvort eitthvað myndi detta af. Það gekk vonum framar og eiginlega ekkert hrundi af. En ákvað ég samt að setja annað lag af Modge Podge yfir. Better to be safe than sorry, með glimmer slóðina á eftir mér!
Ég hlakka ferlega til að dansa í nýju glimmer hælunum mínum, hleypa sumar og sól í hjarta mitt og kveðja prófljótuna sem er að byrja að taka sér bólfestu.
Gangi ykkur vel sem eruð að byrja prófatíðina!
Gleðilegt glimmer sumar!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.